is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4423

Titill: 
  • Framkomukvíði tónlistarmanna og aðferðir sem þeir nota til að vinna bug á honum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Rannsókn var gerð á 108 hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljóðfæranemendum Tónlistarskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands með það að markmiði að fá yfirsýn yfir alvarleika framkomukvíða og aðferðir sem atvinnuhljóðfæraleikarar og tónlistarnemar nota til að fást við vandann, með sérstakri áherslu á beta-blokkara notkun. Notast var við sjálfsmatskvarðana Kenny Music Performance Anxiety Inventory og Performance Anxiety Inventory og spurningalista sem saminn var fyrir rannsóknina. Niðurstöður hennar leiddu í ljós að allir þátttakendur hafa fundið fyrir kvíða í tengslum við tónlistarflutning en tónlistarnemar finna fyrir meiri framkomukvíða en atvinnuhljóðfæraleikarar og konur finna fyrir meiri kvíða en karlar. Áheyrnarprufur, einleikstónleikar og próf eru þær aðstæður sem eru mest kvíðavekjandi. Flestir, eða 82% sögðust finna fyrir hröðum hjartslætti í tengslum við tónlistarflutning, 59% fyrir handkulda, 49% skjálfta og 49% fyrir svita. Þátttakendurnir beita margháttuðum aðferðum til að ná tökum á kvíðanum, öndunaræfingar eru vinsælasta aðferðin en 46% notast við þá aðferð, 41% stunda hugleiðslu og 14% jóga. Ríflega helmingur atvinnuhljóðfæraleikara hefur notast við beta-blokkara og 11% tónlistarnema. Notkun þeirra er algengust í tengslum við áheyrnarprufur, einleikstónleika og kammertónleika.

Samþykkt: 
  • 11.2.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4423


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Framkomukvíði i_fixed.pdf731.64 kBLokaðurHeildartextiPDF