is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Þverfræðilegt nám > Lýðheilsuvísindi >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4425

Titill: 
  • Mat á samfallsbrotum í hrygg með DXA: Samanburður á tveimur mismunandi aðferðum
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Samfallsbrot í hrygg eru algeng beinþynningarbrot meðal kvenna eftir 65 ára aldur. Algengi þeirra er þó ekki alveg ljós. Greining á samfallsbrotum er mikilvæg þar sem brot eykur líkur á frekari brotum.
    Markmið þessa verkefnis var að meta hæfi tveggja mismunandi greiningaraðferða til að greina samfallsbrot af DXA myndum og bera saman við röntgengreiningu. Áherslumunur er á aðferðunum þar sem önnur (ABQ) er sjónræn aðferð sem gerir kröfu um rof á endaplötu liðbolar en hin (McCloskey) er mælanleg aðferð sem byggir á beinum hæðarmælingum liðbola (McCloskey). Við mat á hæfi aðferðanna voru þær bornar saman við Genant aðferð sem er hálfsjónræn aðferð og notuð á röntgenmyndir. Jafnframt var leitast við að meta algengi og nýgengi samfallsbrota meðal 75 – 80 ára íslenskra kvenna og reynt að meta hlutfall þeirra kvennanna sem ekki vissi af brotum sem þær greindust með í rannsókninni.
    Rannsóknarhópurinn samanstóð af 166 konum, allar fæddar árið 1927 og búsettar í Reykjavík. Konurnar komu tvisvar sinnum í beinþéttnimælingu, fyrst árið 2003 og aftur fjórum árum síðar, árið 2007. Við hvora komu voru teknar hryggjamyndir í DXA auk þess sem 108 konur fóru einnig í röntgenmynd af hrygg árið 2007. Röntgengreining (Genant) var notuð sem gullstaðall við mat á hæfi ABQ og McCloskey.
    Rannsóknin sýndi ekki marktækan mun milli ABQ og McCloskey aðferða með tilliti til greininga á algengi samfallsbrota árin 2003 og 2007. Algengi við 75 ára aldur mældist 31,3% (ABQ) og 24,1% (McCloskey) og við 80.aldursár 36,7% (ABQ) og 38,0% (McCloskey). Marktækur munur var milli aðferðanna við greiningu nýgengi samfallsbrota, þar sem marktækt fleiri brot greindust með McCloskey í seinna skiptið sem hópurinn var mældur. Jákvætt forspárgildi aðferðanna tveggja var 82% á hvern einstakling. Meirihluti kvenna (um 70%) vissi ekki af eigin samfallsbrotum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að leit samfallsbrota meðal eldri kvenna á Íslandi væri tvímælalaust gagnleg með notkun DXA samhliða beinþéttnimælingum. Samfallsbrot eldri kvenna eru algeng og þeim fylgja oft skert lífsgæði. Því er mikilvægt að greina samfallsbrot snemma svo viðeigandi meðferð og forvörn fyrir frekari brotum geti hafist.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 2011 vegna birtingar í ritrýndu tímariti
Samþykkt: 
  • 11.2.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4425


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
DXA_fixed.pdf2.25 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna