is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4441

Titill: 
  • Líkön vanskilahlutfalla Sparisjóðsins í Keflavík
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Á undanförnum nokkrum árum hafa vanskil útlána Sparisjóðsins í Keflavík lækkað svo um munar fram til ársins 2007 þegar viðsnúningur varð og vanskil tóku aftur að aukast. Er því mikilvægt að líkana1 vanskilahlutföll svo hægt sé að sjá fyrir um þróun mála og grípa inn í þar sem þess er þörf.
    Verkefni þetta leitast við að skapa líkön fyrir vanskilahlutföll útlána sem föll af þekktum hagstærðum á borð við verðbólgu og stýrivöxtum, svo einhverjir séu nefndir. Grundvöllur vals hagstærða er að fyrir liggur af hálfu greiningar- og fagaðila spá um þessar sömu hagstærðir sem aftur gerir kleyft að spá fyrir um vanskilahlutföll fram í tímann á grundvelli líkananna.
    Sérstök líkön voru sköpuð fyrir heildarvanskilahlutfall bankans, vanskil einstaklinga og vanskil lögaðila. Reyndust líkönin vera þokkaleg en þau höfðu á bilinu 75% til 82% útskýringarhlutfall miðað við raunveruleg gögn. Einnig eru settar fram tillögur um framþróun líkananna, hvernig hægt er að bæta þau frekar og eins hvernig hægt væri að skapa önnur líkön sem hagnýt væru í áhættustýringu útlána.

Samþykkt: 
  • 17.2.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4441


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
essay_fixed.pdf4.22 MBLokaðurHeildartextiPDF