Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/445
Ýmsir umhverfisþættir, s.s. ljóslota, hiti, fæðuframboð o.fl hafa áhrif á kynþro
laxfiska. Sýnt hefur verið fram á að veigamesti þátturinn í þessu ferli er ljóslotan en
hitastig er einnig stór áhrifaþáttur. Kynþroska ýmissa laxfiska í eldi er stjórnað með
ljóslotu og hitastigi. Miklir hagsmunir eru fólgnir í því að geta stjórnað hrygningartíma
og þar með framleitt hrogn oftar en einu sinni á ári.
Ííslenskum bleikjueldisstöðvum verður ríflega helmingur heimsframleiðslu af
eldisbleikju til. Það er mikilvægt fyrir íslenskan bleikjuiðnað að halda sterkri stöðu sinni
ámarkaðnum. Til þess þarf að ná fram aukinni hagkvæmni í eldinu svo það geti vaxið
enn frekar og dafnað. Framleiðsla á hrognum á mismunandi árstímum gæti verið einn
liður í þá átt að gera íslenskt bleikjueldi hagkvæmara.
Tilraunin hófst í júlí 2002 þegar bleikju á þriðja aldursári (2+) var komið fyrir í
eldisrými með mismunandi ljóslotu og hitastigi. Viðmiðunarhópur (meðferð 1) var alinn
á náttúrulegri ljóslotu og því sem næst náttúrulegu hitastigi. Fiskur í þeirri meðferð varð
kynþroska að hausti líkt og gerist út í náttúrunni. Í meðferð 2 var ráðgert að seinka
kynþroska um 6 mánuði. Þessi meðferð fólst í því að setja fisk á stutta ljóslotu síðsumars
6L:18M (6 klst.ljós:18 klst. myrkur) og 5°C, á langa ljóslotu 22L:2M og 10°C frá október
og fram í mars og svo aftur á stutta ljóslotu 6L:18M og 5°C eftir það. Stór hluti fisksins
varð kynþroska strax sama haustið og tilraunin hófst. Í maí þegar tilrauninni lauk sýndi
fiskur í þessari meðferð merki um að hann væri að verða kynþroska aftur. Í meðferð 3 var
kynþroska seinkað um 3 mánuði. Fiskur í þessari meðferð var settur á langa ljóslotu
22L:2M og 10°C og henni haldið fram í nóvember en þá var ljóslota stytt í 6L:18M og
hitastig lækkað í 5°C. Meirihluti fiskanna varð kynþroska þegar ljóslota var stytt.
Meðferð 4 fólst í því að halda fiski á stöðugri langri ljóslotu 22L:2M og 10°C. Vöxtur í
þessari meðferð var mikill og tíðni kynþroska fiska lág.
Framhaldstilraun er í framkvæmd og nú styttist í að lokaniðurstöður fáist úr henni.
Fyrirliggjandi niðurstöður gefa til kynna að kynþroska bleikju hafi verið seinkað um 6
mánuði. Þeirri tilraun er einnig ætlað að kanna raunverulegan ávinning af því að hafa fisk
í eldi sem uppruninn er úr vorhrygningu í stað hausthrygningar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ahrifmism.pdf | 560.56 kB | Takmarkaður | Áhrif mismunandi ljóslotu á kynþroska bleikju (Salvelinus alpinus, L.) - heild | ||
ahrifmism_e.pdf | 92.59 kB | Opinn | Áhrif mismunandi ljóslotu á kynþroska bleikju (Salvelinus alpinus, L.) - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
ahrifmism_h.pdf | 181.13 kB | Opinn | Áhrif mismunandi ljóslotu á kynþroska bleikju (Salvelinus alpinus, L.) - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
ahrifmism_u.pdf | 140.24 kB | Opinn | Áhrif mismunandi ljóslotu á kynþroska bleikju (Salvelinus alpinus, L.) - útdráttur | Skoða/Opna |