Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4473
Af lögmálinu um eitt verð leiðir að gengisbreytingar hafa töluverð áhrif á verðbólgu. Þetta samband, sem nefnt er gengisleki á verðbólgu, hefur mikla þýðingu á Íslandi þar sem þjóðin er verðbólguhrjáð og með einn minnsta sjálfstæða gjaldmiðil í heimi. Lítið virðist hafa verið ritað um þetta efni hérlendis ef tekið er mið af áhrifum þessa þáttar á verðlag. Fræðigrunnur ritgerðarinnar byggir á kenningum hagfræðinnar um gengi, verðbólgu og lögmálinu um eitt verð en kenningar um gengisleka eru byggðar á því síðastnefnda. Samkvæmt lögmálinu um eitt verð ætti gengisleki að vera algjör, en það er þó ekki raunin. Í ritgerðinni er gerð mæling á áhrifum gengisbreytinga á neysluverð og til mælingarinnar er notað Vector Autoregression líkan með sex töfum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er uppsafnaður gengisleki á verðbólgu næstu tólf mánuði eftir gengisbreytingu um 23% og endanlegur gengisleki þegar áhrifin eru að öllu komin fram um 28%. Gæði líkansins voru metin með tilgátuprófi og tókst með því að hafna þeirri núlltilgátu að gengi hafi ekki áhrif á verðbólgu
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
arni_sverrir_fixed.pdf | 2.3 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Vector Autoregression.xlsm | 43.94 kB | Opinn | Viðauki | Microsoft Excel | Skoða/Opna |