Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4509
Samrunar hafa verið vinsælir meðal fyrirtækja í mörg ár og reynst góð leið til að vaxa á stuttum tíma. Þrátt fyrir vinsældirnar þá misheppnast meira en helmingur samruna. Rannsóknir hafa sýnt að ekki er lögð næg áhersla á undirbúing samruna og ekki nægjanlegt tillit tekið til ýmissa lykilþátta, eins og til dæmis mannauðsþáttarins. Í ritgerðinni er fjallað almennt um samruna, sögu og helstu hvata. Áhersla er lögð á hina ýmsu þætti í samrunaferlinu, eins og skipulag, stefnumótun, fyrirtækjamenningu og starfsmannaþáttinn.
Í stuttu máli eru niðurstöður þær að stjórnendur eyða ekki nógu miklum tíma í samrunaferlið og undirbúning þess, sem getur leitt til mikillar óreiðu. Þetta hefur meðal annars truflandi áhrif á starfsfólkið, sem í kjölfarið á erfitt með að glíma við breytingarnar sem fylgja samrunanum. Hægt er að reyna koma í veg fyrir þetta með ýtarlegri skipulagningu og góðum undirbúning á samrunaferlinu, sem felst í því að undirbúa og upplýsa starfsfólkið vel ásamt því að móta skýra stefnu, sem veitir fyrirtæki og starfsfólki þess tilgang.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ritgerð_Holmfridur_Boasdottir_Heildarskjal5.pdf | 304.05 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
holmfridur_boasdottir_heimildaskra.pdf | 59.05 kB | Opinn | Heimildir | Skoða/Opna |