Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/451
Vaxandi mengun og aukning gróðurhúsalofttegunda í heiminum
og sú staðreynd að ekki líður á löngu þar til kolefniseldsneytisgjafar verða
áþrotum hefur athygli manna í auknum mæli beinst að endurnýtanlegum
auðlindum sem hægt er að vinna orku úr. Ein þessara endurnýtanlegu
auðlinda er vetni. Í dag er vetni að mestu framleitt úr vetnisríkum
kolefnasamböndum með ýmsum efna og eðlisfræðilegum aðferðum. Upp
ásíðkastið hafa sjónir manna beinast í auknum mæli að vetnisframleiðslu
með örverufræðilegum ferlum, bæði ljóstillífandi og gerjandi. Við bruna
vetnis myndast aðeins vatn í formi gufu og er bruni þess því ekki
skaðlegur umhverfinu. Við niðurbrot sykra mynda gerjandi örverur
rokgjarnar fitusýrur eins og edikssýru og smjörsýru auk vetnis og
koltvísýrings, en einnig oxaðar afurðir eins og etanól. Hlutfall edikssýru
og smjörsýru við niðurbrot sykra í gerjunarferlinu er mikilvægt. Hærra
hlutfall edikssýru gefur meira magn af vetni. Hitakærar bakteríur
framleiða yfirleitt hærra hlutfall edikssýru við gerjandi niðurbrot sykra
samanborið við meðalhitakærar bakteríur.
Einangraðir hafa verið tveir stofnar úr hverum í Grensdal við
Hveragerði, Stofn 1 og Stofn 14. Þessir stofnar eru loftfirrtir, brjóta niður
sykrur og mynda gas. Þeir vaxa við 45-50°C og best við sýrustig 7-8.
Báðir stofnar eru líklega af flokki Clostridia, stofn 1 er skyldur
ættkvíslinni Ruminococcus ogStofn 14 ættvíslinni Clostridium,næsti
þekkti stofn er Sarcina maxima skyldleiki við þessa stofna er 92 og 94%
sem getur gefið vísbendingu um að um nýja stofna sé að ræða.
Lykilorð: Jarðhitasvæði, hitakær, loftfirrt, gerjun, lífvetni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lifvetni.pdf | 1.25 MB | Takmarkaður | Lífvetni - heild | ||
lifvetni_e.pdf | 184.04 kB | Opinn | Lífvetni - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
lifvetni_h.pdf | 184.92 kB | Opinn | Lífvetni - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
lifvetni_u.pdf | 179.5 kB | Opinn | Lífvetni - útdráttur | Skoða/Opna |