is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Lokaverkefni í félagsvísindadeild (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4521

Titill: 
  • Möguleg áhrif af upptöku evru á ferðaþjónustu á Íslandi
Titill: 
  • Possible impacts of the Euro on the Icelandic tourism industry
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Umræðan um upptöku evru hefur verið mikil undanfarin ár hér á landi og eftir efnahagshrun landsins hefur þessi umræða færst í aukanna. Ferðaþjónusta landsins er ein af stærstu útflutningsgreinum landsins og því er við hendi að skoða hver möguleg áhrif yrðu á þessa atvinnugrein ef af upptöku evru yrði. Höfundur bar saman gengi evrunnar að hverju sinni við gistinætur á sama tíma og árin eftir. Þar kom í ljós að samhengið milli kostnaðar á evru og gistinótta aukningu er lítið. Einnig bar höfundur saman gengi evru við gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum. Þar var mikið samhengi en hins vegar ef þessar gjaldeyristekjur voru reiknaðar í evrur var raunin sú aukning í heildarupphæð evra var ekki mikil. Því má segja að það séu ekki að skila sér fleiri evru til landsins frá erlendum ferðamönnum þrátt fyrir lágt gengi íslensku krónunnar.
    Áhrifin sem önnur lönd eins og t.d. Slóvenía sem tók upp evruna árið 2007 voru skoðuð en helstu neikvæðu áhrifin voru hækkandi verðlag. Hins vegar er líklegra að áhrifin á Íslandi munu verða lækkandi verðlag og voru þeir viðmælendur sem höfundur tók viðtal við sammála því. Einnig töldu viðmælendur að rekstarumhverfi fyrirtækja í ferðaþjónustu myndi batna til muna ásamt því að ímynd Íslands myndi hugsanlega batna og traust til landsins aukast. Ferðamönnum til Íslands ætti að fjölga í kjölfar upptöku evru þá ekki síst vegna auðveldari ferðamáta og betra gegnsæi í verðlagi.

Samþykkt: 
  • 11.3.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4521


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
georg_heidar_pdf.pdf953.32 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna