is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4526

Titill: 
  • Verkefnastjórnun í byggingaiðnaði
Titill: 
  • Project management in construction industry
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er fjallað um uppbyggingu verkefnastjórnunar í byggingainðnaðinum og þær kenningar sem notast er við. Fjallað er um fræðileg hugtök og sagt frá tengingu þeirra við framleiðslu. Tekin eru viðtöl við aðila innan byggingainðnaðarins þar sem viðhorf þeirra og þekking á verkefnastjórnun er skoðuð og farið er yfir hverjar helstu hömlur byggingainðnaðarins eru í nútímasamfélagi og harðnandi samkeppnisumhverfi. Einkenni iðnaðarins eru skoðuð sem og innri og ytri þættir hans. Verkefnastjórnun er skipt upp í sex stig í þessari ritgerð, þar sem hvert stig inniheldur ákveðin hluta þess ferlis sem verkefnið gengur í gegnum, stjórnunarlega séð. Megin markmiðið er að varpa ljósi á hlutverk verkefnastjórnunar og mikilvægi þess í byggingainðnaðinum. Við rannsóknir hefur komið fram að almenn vanþekking er á hugtökum verkefnastjórnunar sem gerir samhæfingu erfiða og skortur er á menntun innan fræðanna. Flestir sem starfa við verkefnastjórnun í dag eru sjálfmenntaðir, sem leiðir til þess að fjöldi mistaka hefur verið gerður til að öðlast þá þekkingu sem menn búa yfir. Með því að innleiða verkefnastjórnun sem hluta af námi í byggingainðnaði væri hægt að stytta til muna lærdómsferlið og draga úr mistökum og endurvinnslu á verktíma. Byggingainðnaðurinn er í kringum tíu prósent af vergri landsframleiðslu hvers lands en er einnig sá iðnaður sem þróast hvað hægast af öllum iðnuðum. Hagnaður byggingafyrirtækja er að meðaltali í kringum 1.5 % af veltu og talið er að sóun geti numið allt að þrjátíu prósentum. Það er því til mikils að vinna fyrir fyrirtæki innan iðnaðarins við innleiðingu úrbóta og bættra starfshátta. Verkefnastjórnun bíður upp á rekstrarleg- og fagleg stjórntæki sem getur auðveldað fyrirtækjum að bæta hag sinn og auka samkeppnishæfni í erfiðu samkeppnisumhverfi.

Samþykkt: 
  • 11.3.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4526


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
gardar_orn_pdf.pdf2.15 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna