is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Meistaraverkefni í viðskiptadeild (MS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4585

Titill: 
  • Erfið fæðingarreynsla : afleiðingar og möguleg meðferðarúrræði til bættrar þjónustu
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni er leitast við að lýsa fæðingarreynslunni og hennar helstu áhrifaþáttum,
    ásamt því að gera grein fyrir jákvæðri og neikvæðri upplifun með áherslu á neikvæða
    fæðingarreynslu og alvarlegum afleiðingum hennar, nánar tiltekið áfallastreituröskun og
    fæðingarótta. Þessu til viðbótar er helstu meðferðarúrræðum lýst með tilliti til andlegra kvilla
    eftir barnsfæðingu í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvað hægt er að gera til að draga úr eða koma í
    veg fyrir umrædd vandamál og um leið að stuðla að bættri þjónustu á sviði kvenlækninga og
    ljósmóðurfræða.
    Við heimildaleit var stuðst við leitarvefina Medline, Psychinfo, Scopus, Cinahl, Pubmed
    og Google scholar en rannsóknir varðandi viðfangsefnið eru margar talsins og er þær helst að
    finna á sviði sálarfræða, læknisfræða, hjúkrunar- og ljósmóðurfræða. Mikil þörf virðist vera á
    umfjöllun viðfangsefnisins og er áherslan sem neikvæð fæðingarreynsla fær í þessari ritgerð talin
    nauðsynlegt innlegg í þeim tilgangi að vekja athygli á alvarleika hennar og óæskilegum en
    jafnframt meðfærilegum afleiðingum. Þörfin á umfjöllun er ekki síður til staðar með tilliti til
    bættrar þjónustu og bættrar andlegrar heilsu nýbakaðra mæðra. Varðandi frekari
    rannsóknarvinnu virðist vera þörf á rannsóknum tengdum forvörnum og meðferð en ekki síður
    tengdum rekstri og stefnumótun þjónustunnar með tilliti til fæðingarreynslunnar. Niðurstaðan er
    sú að fæðingarreynslan hefur víðtæk áhrif á einstaklinginn, neikvæðar afleiðingar þarfnast frekari
    athygli, ásamt því að meðferðarúrræði séu gerð aðgengilegri í þeim tilgangi að bæta
    heilbrigðisþjónustuna með langtíma árangur í huga.

Samþykkt: 
  • 23.3.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4585


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
fæðingarreynslan.pdf347.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna