Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4598
Við gerð þessarar ritgerðar voru heimildir um áhrifaþætti starfsanda bornar saman og þannig
fundið út hverjir þeirra væru almennt taldir skipta mestu máli. Skoðaðar voru afleiðingar slæms
starfsanda og hvernig mætti reyna að bæta úr honum en einnig var skoðaður sá ávinningur sem
felst í að halda uppi góðum starfsanda. Þannig er rætt um hvar gróði fyrirtækis liggur og hvar
innan þess áhrifin sjást best. Einnig voru skilgreiningar á hugtakinu starfsanda ræddar og helstu
vandamál við mælingar sett fram.
Niðurstöður urðu þær að helstu áhrifaþættir starfsanda væri hægt að skipta niður í næsta
yfirmann, upplýsingaflæði og samskipti á vinnustað, umbun og viðurkenningu, starfið sjálft,
starfsumhverfið og fyrirtæki og æðri stjórn. Innan þessara þátta búa síðan mörg lítil atriði sem
rædd eru frekar í ritgerðinni.
Í rannsóknarhluta ritgerðarinnar má síðan finna niðurstöður úr rannsókn sem gerð var í tengslum
við hana. Könnunin snýr að starfsanda meðal starfsfólks Háskólans á Bifröst og var gerð í formi
spurningalista sem byggður var á áðurnefndum áhrifaþáttum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
sigurlaug_jonsd_fixed.pdf | 8.01 MB | Lokaður | Heildartexti |