Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4603
Verkefnið er fýsileikakönnun sem hefur þann tilgang að kanna fýsileika viðskiptahugmyndar
sem felst í að setja upp skyndibitastað. Í skýrslunni er hugmyndin kynnt og gerð grein fyrir
helstu fræðilegu aðferðunum sem unnið er með . Markaðurinn og samkeppnin eru greind og
leiðir fyrirtækis til að skapa samkeppnishæfni og forskot. Nokkuð ýtarlega er fjallað um
markaðssetningu, með áherslu á möguleika internetsins og sett fram hugmynd að
markaðssetningu. Í næsta hluta er svo ytra og innra umhverfið greint og dregnir fram
styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri. Að lokum er svo gerð grein fyrir fjárfestingum,
rekstri og fjárhagslegum greiningum. Því næst eru niðurstöður settar fram.
Að því gefnu að forsendur þær er fýsileikakönnunin byggir á standist, gefa niðurstöður til
kynna að fýsilegur kostur geti verið að ráðast í verkefnið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
hrafnkell_2_fixed.pdf | 786 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |