is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4607

Titill: 
  • Átthagafræði Bláskógabyggðar : innleiðing upplýsingatækni og miðlunar í grunnskóla með umfjöllun um átthaga nemenda að leiðarljósi
Námsstig: 
  • Meistara
Höfundur: 
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þetta verkefni heitir Átthagafræði Bláskógabyggðar. Innleiðing upplýsingatækni og miðlunar í grunnskóla með umfjöllun um átthaga nemenda að leiðarljósi. Verkið er tvíþætt; annars vegar fræðileg ritgerð og hins vegar vefur sem birtir nemendaverkefni, kennslu á þrjú forrit, tengla á ýmislegt um upplýsingatækni og tengla sem tengjast sveitar¬félaginu Bláskógabyggð.
    Verkefnið byggir á hugmyndum um kennslu í upplýsingatækni og nýtingu hennar í skólastarfi en einnig á hugmyndum um átthagafræði. Einnig er verkefninu ætlað að vera innan ramma grunnskólalaga og byggja á Aðalnámskrá grunnskóla. Verkefnið er hugsað, frá upphafi, til þess að koma á kennslu og notkun í upplýsingatækni og miðlun í grunnskóla, einkum í Grunnskóla Bláskógabyggðar. Auðvelt á að vera að yfirfæra verkefnið og nýta það breytt fyrir aðra grunnskóla eða sveitarfélög. Verkefnið byggir einnig á hugmyndum um fullorðinsfræðslu og hvaða leiðir eru færar til að hvetja kennara til að efla færni sína í upplýsingatækni og innleiða hana í grunnskólastarfið.
    Verkefninu er skipt í fjórar meginstoðir. Ritgerðin fjallar um fræðilegar forsendur fyrir kennslu í upplýsingatækni og miðlun, miðlalæsi og sköpunarþörf. Þar er sjónum beint að því hvað kemur sér vel fyrir nemandann í náminu og forsendur fyrir því að hann geti unnið verkefnin og nemendaverkefnin sem fylgja. Nemendaverkefnin eiga að gefa hugmyndir um það hvernig hægt er að samþætta og flétta upplýsingatækni inn í aðrar námsgreinar grunnskólans. Þar er einkum beint sjónum að því að verkefnin snúi að heimabyggð nemenda og styðjist við Aðalnámskrá grunnskóla. Segja má að þriðja stoðin sé fyrstu skrefin í kennslu á forrit. Þar eru kynnt þrjú forrit sem eru einföld í notkun og talin góð fyrir byrjendur. Fjórða stoðin er vefur. Höfundur hefur sett hann upp á léninu http://grblaskogabyggd.is/atthagafraedi.
    Markmið verkefnisins Átthagafræði Bláskógabyggðar er tvíþætt. Annars vegar að fá nemendur í Grunnskóla Bláskógabyggðar til að búa til með hjálp upplýsingatækninnar og setja á Netið ýmiss konar efni um átthagana. Hins vegar að benda á leiðir til þess að efla grunnskólakennara í endurmenntun á sviði upplýsingatækni og miðlunar.
    Verkefnið er ennfremur hugsað, til lengri tíma litið, sem heimild um sögu Bláskógabyggðar. Einnig gæti vefurinn orðið eitt af andlitum sveitarfélagsins út á við. Þá má sjá fyrir sér að eldri nemendur skólans vinni verkefni á erlendum tungumálum og þannig geti vefurinn orðið ferðamennsku í sveitarfélaginu að liði í að kynna sveitarfélagið. Þá má ætla að t.d. brottfluttir, ættingjar sveitunga og nýir sveitungar hefðu gaman af að glugga í vefinn. Með tímanun á vefurinn að þróast og vaxa, verða safn til fróðleiks og skemmtunar.
    Lykilorð: Upplýsingamennt, fullorðinsfræðsla, átthagafræði.

Samþykkt: 
  • 25.3.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4607


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Agla_Snorradottir_MEd_Atthagafraedi_Blaskogabyggdar_2010_fixed.pdf34.95 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna