Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4684
Meðalganga er ein tegund aðildar í einkamálum, en heimild til meðalgöngu er að finna í 20. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála (EML). Þar er kveðið á um þann möguleika fyrir þriðja mann til þess að ganga inn í mál annarra. Er þessi heimild sérstök að mörgu leyti þar sem ekki sérlega oft hefur verið notast við hana og þarfnast því sérstakrar skoðunar hvernig henni er beitt í framkvæmd. Markmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir því hvað felst í meðalgönguaðild samkvæmt framangreindu ákvæði og hvernig framkvæmdinni er háttað þegar stuðst er við þessa heimild.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð_tibúin.pdf | 210.17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |