Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4718
Eftirfarandi rannsóknarritgerð er lokaverkefni til B.Ed. prófs í leikskólakennarafræði við Háskóla Íslands haustið 2009. Hún beinir sjónum að viðhorfum, þátttöku, og virkni fimm ára leikskólabarna á útileiksvæði leikskóla. Markmiðið er að draga fram í dagsljósið sjónarmið barna og leita svara við því hvaða gildi liggja að baki lýðræðislegrar uppeldisaðferðar fyrir fimm ára gömul leikskólabörn. Við höfum kannað viðhorf og virkni barnanna á útileiksvæði leikskólans þeirra og skoðað hvað börnin hafa að segja um útileiksvæðið. Hvað þau vilja hafa þar og hvort þau geti haft einhver áhrif á það sem þau leika sér með og hvað það er sem börnin vilja hafa og gera á útileiksvæðinu. Við vonumst til að upplýsingarnar, sem við fáum út úr rannsókninni, nýtist til að efla þátttöku barnanna, lýðræði þeirra og að litið sé til sjónarmiða barna í daglegu starfi leikskóla.
Það sem kveikti áhuga okkar á viðfangsefninu er sú staðreynd að á íslenskum leikskólum er lögð mikil áhersla á útivist barna. Okkur langaði að kanna virkni og sýn barnanna sjálfra á útileiksvæði. Á undanförnum árum hafa rannsakendur kannað sýn og viðhorf á leikskólastarfi út frá sjónarhorni fullorðinna, en minna hefur verið skoðað hvaða sýn og viðhorf leikskólabörnin hafa sjálf. Viljum við beina sjónum okkar að því sem vekur áhuga og spennu barnanna á útileiksvæði leikskóla síns og enn fremur viljum við athuga hvort börnin geti haft áhrif á leik sinn og hvort þau hafi rétt til þátttöku í leikskólastarfinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
2009_pdf_fixed.pdf | 704.65 kB | Lokaður | Heildartexti |