is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4725

Titill: 
  • Skipulögð glæpastarfsemi í Rússlandi: Fall Sovétríkjanna og siðrof
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Skipulögð glæpastarfsemi hefur lengi verið vandamál í Rússlandi og reyndar einnig í öðrum löndum. Mikið hefur verið fjallað um skipulagða glæpastarfsemi og hvernig hún aðlagar sig breytingum í samfélaginu hverju sinni. Í þessari ritgerð verður farið yfir skilgreiningar á hugtakinu skipulögð glæpastarfsemi. Farið verður yfir kenningu Emile Durkheim um siðrof og einnig verða teknar fyrir nokkrar útfærslur af kenningu hans. Þá verður einnig farið yfir kenningu sem gæti útskýrt hvernig afbrotahegðun lærist innan ákveðins hóps. Í seinni hluta ritgerðarinnar verður byrjað á að fara yfir sögu skipulagðrar glæpastarfsemi í Rússlandi fyrir fall Sovétríkjanna. Meginefni ritgerðarinnar verður umfjöllun um þær breytingar sem urðu í rússnesku samfélagi eftir fallið. Farið verður yfir þá helstu þætti sem eru taldir hafa stuðlað að því að rússnesk glæpastarfsemi blómstraði á þessum tíma. Þessir þættir skiptast í stjórnmál, efnahagsmarkaðinn og lagasetningar en allir þessir þættir náðu ekki að fylgja eftir þeim gríðarlega hröðu breytingum sem áttu sér stað. Í lokin verður farið yfir hvernig skipulagðri glæpastarfsemi er háttað í Rússlandi í dag. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að siðrof átti sér stað í Rússlandi eftir fall Sovétríkjanna og tækifæri opnuðust fyrir skipulögð glæpasamtök til þess að stækka starfsemi sína á skömmum tíma.

Samþykkt: 
  • 21.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4725


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ritgerðin glæpastarfsemi og siðrof.pdf773.68 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna