is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4727

Titill: 
  • Innganga Íslands í Atlantshafsbandalagið. Áhrif hugmyndafræði á orðræðuna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er innganga Íslands í Atlantshafsbandalagið árið 1949 skoðuð. Hún var eitt umdeildasta mál á Íslandi á síðustu öld. Miklar deilur spruttu upp og andstæð sjónarmið tókust á. Sjónum er sérstaklega beint að hugmyndafræðinni sem var ráðandi hjá stjórnmálaflokkum, hvernig málgögn þeirra endurspegluðu þá hugmyndafræði og hvernig hún birtist í þingræðum. Fjallað er um leiðara dagblaða fyrstu þrjá mánuði ársins 1949 og gerð er grein fyrir umfangi þeirra sem fjalla um Atlantshafsbandalagið. Greint er frá umræðum á Alþingi sem fóru fram um þetta mál. Við gerð ritgerðarinnar er stuðst við fræðibækur, dagblöð og Alþingistíðindi. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að mjög skýra hugmyndafræði var að finna hjá stjórnmálaflokkum landsins og endurspegluðust þær í leiðurum blaðanna sem voru á þeim tíma nátengd stjórnmálaflokkum og í þingræðum. Stuðningsmenn bandalagsins töldu að með inngöngu yrðu varnir landsins tryggðar og komið yrði í veg fyrir að Sovétríkin myndu ná að tryggja áhrifasvæði sitt enn frekar. Enn fremur myndu lýðræðisríkin vinna saman og þannig hefta útbreiðslu kommúnismans. Andstæðingar bandalagsins töldu hins vegar að bandalagið snérist eingöngu um stríðsáróður og ríkisstjórn Íslands gerði hvað sem er til að þóknast Bandaríkjunum.

Samþykkt: 
  • 23.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4727


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BAritgerð.LOKAÚTGÁFA.pdf638.57 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna