is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4735

Titill: 
  • „Ég ætla að klára þetta, það er málið.“ Brotthvarf nemenda sem komnir eru vel á veg með að ljúka háskólanámi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í reynslu einstaklinga sem horfið hafa frá háskólanámi sem þeir voru vel á veg komnir með að ljúka. Rannsóknin byggir á viðtölum við sjö einstaklinga sem hurfu frá námi við hug- og félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þrátt fyrir að þessir einstaklingar væru ánægðir í námi og næðu ágætum árangri var námsval þeirra fremur lítið ígrundað og þeir höfðu ekki skýr markmið með námi. Þeir áttu erfitt með að skipuleggja tíma sinn og vinnu í tengslum við námið, fannst þeir ekki fá nægilegar leiðbeiningar innan skólans um ferlið við skrif BA-ritgerðar og hafa ekki náð að samræma ritgerðarskrif við starf og aðrar skyldur í einkalífi. Þeir eru ósáttir við að hafa ekki lokið því námi sem að var stefnt og telja sig standa höllum fæti úti á vinnumarkaði án háskólagráðu. Vonast er til að niðurstöðurnar geti nýst sem innlegg í þá stefnu Háskóla Íslands að draga úr brotthvarfi nemenda við skólann. Þær ættu einnig að geta verið gagnlegar fyrir náms- og starfsráðgjafa á háskólastigi sem eru í lykilaðstöðu til þess að vinna gegn brotthvarfi með ýmsum hætti.

Samþykkt: 
  • 26.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4735


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MAritg.HVK.pdf578.32 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna