Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4757
Í þessu lokaverkefni er leitað svara við því hvort og hvaða áhrif alþjóðavæðing hafi haft á vinabæjasamstarf á Norðurlöndum. Alþjóðavæðing dregur saman tíma og rúm til
samskipta milli mismunandi svæða. Hún er talin leiða til ýmis konar samfélagslegs
samruna, sem sumir fræðimenn telja að dragi úr áhrifum staðbundins umhverfis á
sjálfsmynd fólks. Í þessu verkefni eru settar fram sex tilgátur um áhrif alþjóðavæðingar á vinabæjasamstarf á Norðurlöndum. Þar er gengið út frá því að alþjóðavæddustu sveitarfélögin á Norðurlöndum hafi almennt minni áhuga á samstarfi við önnur norræn sveitarfélög en þau sem eru í minni tengslum við umheiminn. Hér er sérstaklega beint sjónum að því hvaða áhrif tengsl sveitarfélaganna við Evrópu, endalok kalda stríðsins og tæknibreytingar hafi haft á samstarfið. Notaðar voru fjölþættar rannsóknaraðferðir, þar sem fulltrúar 179 norrænna sveitarfélaga voru meðal annars spurðir út í samstarf þeirra á alþjóðavettvangi.
Rannsóknin leiddi í ljós að þau sveitarfélög sem eru virkust í alþjóðlegu samstarfi,
eru að jafnaði einnig virkust í norrænu samstarfi. Þá var ekki að sjá að aðild ríkja að
Evrópusambandinu hefði áhrif á virkni sveitarfélaga þeirra í norrænu samstarfi. Þó er
ljóst að þættir, eins og aukið aðgengi sveitarfélaga að sjóðum til evrópskra verkefna, geta
haft afleiðingar fyrir samstarfið þegar til lengri tíma er litið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Robert_Baldursson.pdf | 937.19 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |