Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4774
Tilgangur rannsóknarinnar var að meta hvaða þættir hefðu áhrif á val nemenda í 10. bekk grunnskóla á framhaldsskólum og námsbrautum, sem og mat þeirra á gagnsemi skólaheimsókna. Spurningalisti var lagður fyrir 272 nemendur í 10. bekk á höfuðborgarsvæðinu. Helstu niðurstöður voru að nemendur afla sér helst upplýsinga um framhaldsskólana í skólaheimsóknum og á heimasíðum framhaldsskólanna. Fáir töldu sig fá upplýsingar um framhaldsskólana í náms- og starfsráðgjöf og frá ættingjum og kennurum. Meira en 90% nemenda töldu að upplýsingar úr skólaheimsóknum gögnuðust við val á skólum og námsbrautum. Nemendur töldu mikilvægt að félagslíf skólanna væri vel kynnt. Einnig kom í ljós að þrátt fyrir að 51% nemenda hafi haft áhuga á verklegu námi þá völdu rúmlega 70% bóklegt nám og átti það við hjá báðum kynjum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Nams_og_starfsradgjof_Svanhildur_Svavarsdottir.pdf | 442.74 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |