is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4774

Titill: 
  • Á hverju byggja 10. bekkingar val sitt á framhaldsskólanámi? Skólaheimsóknir og önnur upplýsingaöflun 10. bekkinga um framhaldsskóla og námsbrautir
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að meta hvaða þættir hefðu áhrif á val nemenda í 10. bekk grunnskóla á framhaldsskólum og námsbrautum, sem og mat þeirra á gagnsemi skólaheimsókna. Spurningalisti var lagður fyrir 272 nemendur í 10. bekk á höfuðborgarsvæðinu. Helstu niðurstöður voru að nemendur afla sér helst upplýsinga um framhaldsskólana í skólaheimsóknum og á heimasíðum framhaldsskólanna. Fáir töldu sig fá upplýsingar um framhaldsskólana í náms- og starfsráðgjöf og frá ættingjum og kennurum. Meira en 90% nemenda töldu að upplýsingar úr skólaheimsóknum gögnuðust við val á skólum og námsbrautum. Nemendur töldu mikilvægt að félagslíf skólanna væri vel kynnt. Einnig kom í ljós að þrátt fyrir að 51% nemenda hafi haft áhuga á verklegu námi þá völdu rúmlega 70% bóklegt nám og átti það við hjá báðum kynjum.

Samþykkt: 
  • 27.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4774


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Nams_og_starfsradgjof_Svanhildur_Svavarsdottir.pdf442.74 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna