Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/477
Í þessu lokaverkefni verður fjallað um útikennslu í náttúrufræði og stærðfræði, sem miðast við ákveðið svæði í Grafarholtinu. Talað verður um gildi umhverfismenntar og útikennslu í grunnskólum landsins og hvernig þær tengjast helstu áherslum Aðalnámskrár grunnskóla. Gerð verður grein fyrir kenningum þekktra fræðimanna og hvernig þær tengjast útikennslu. Einnig verður fjallað almennt um byrjendakennslu í náttúrufræði og stærðfræði og hversu mikilvægt það er að hafa kennsluna fjölbreytta t.d. með útikennslu. Lítilsháttar kynning er á Grafarholtinu og skólunum sem þar eru. Að lokum verður fjallað um kennsluverkefnið útikennsla í Grafarholti. Þar verða kynningar á nokkrum verkefnum sem hægt er að nota í útikennslu.
Í lokaverkefninu er að finna ýmsar góðar upplýsingar fyrir kennara og aðra sem hafa áhuga á að leggja fyrir útiverkefni í náttúrufræði og stærðfræði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ágrip.pdf | 35.76 kB | Opinn | Ágrip | Skoða/Opna | |
Efnisyfirlit.pdf | 42.56 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Formáli.pdf | 39.64 kB | Opinn | Formáli | Skoða/Opna | |
Heimildaskrá.pdf | 92.24 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Meginmál.pdf | 258.44 kB | Lokaður | Meginmál | ||
Kennarahandbók.pdf | 1.34 MB | Opinn | Kennarahandbók | Skoða/Opna | |
Útikennsluverkefni.pdf | 1.13 MB | Opinn | Útikennsluverkefni | Skoða/Opna | |
Vinnubók.pdf | 1.28 MB | Opinn | Vinnubók | Skoða/Opna |