is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4789

Titill: 
  • Breytingastjórnun: Boðskipti og fræðsla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi lokaritgerð til BA prófs í bókasafns- og upplýsingafræði fjallar um breytingastjórnun
    með sérstakri áherslu á boðskipti og fræðslu. Útskýrt er hvað felst í hugtakinu
    breytingastjórnun og þörfinni fyrir henni. Lýst er átta skrefa ferli John P. Kotters til að
    koma á varanlegum breytingum. Tekið er síðan fyrir viðbrögð starfsfólks við
    breytingum en þar er andstaða í aðalhlutverki. Nefndar eru ástæður fyrir andstöðu og
    þær leiðir sem eru hvað mikilvægastar til að yfirvinna hana, boðskipti og fræðslu.
    Boðskipti og fræðsla eru þeir þættir sem stöðugt þarf að huga að svo árangur
    breytingastjórnunar verði í samræmi við væntingar. Tekið er fyrir hvað einkennir
    boðskipti og þær leiðir sem stjórnendur þurfa að vera meðvitaðir um til að boðskipti í
    breytingaferli verði árangursrík. Eftir því sem breytingaferill inniheldur fleiri „maður á
    mann“ boðskipti því betra. Hins vegar geta komið upp vandamál ef stjórnun boðskipta
    er ekki fullnægt og er fjallað lítillega um þau.
    Fræðsla og þjálfun er hluti af breytingaferli og þannig getur breyting á hegðun átt sér
    stað og starfsfólk fengið löngun til að breyta og umhverfið verður hvetjandi.
    Breytingaleiðtogar hafa einnig mikið að segja til um að þjálfunin skili árangri. Hins
    vegar þarf að undirbúa starfsfólk vel fyrir innleiðingu breytinga með árangursríkum
    boðskiptum sem og skipuleggja þjálfunina vel.

Samþykkt: 
  • 28.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4789


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Valgerður_LOKARITGERÐ2010.pdf326.41 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna