Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4835
Eftirfarandi ritgerð byggist á eigindlegri rannsókn á aðstæðum og upplifun erlends farandverkafólks sem ræður sig tímabundið í vist á íslenskum sveitabæjum. Markmið rannsóknarinnar er að vekja athygli á þessum hópi fólks og sérstakri stöðu hans innan samfélagsins. Ritgerðin fjallar sérstaklega um íslenskt lagaumhverfi, vinnuaðstæður, samskipti við vistfjölskyldu og félagstengsl auk þess að velt er vöngum yfir aðkomu félagsráðgjafa að málaflokknum.
Rannsóknin fór fram með öflun fræðilegra heimilda og öflun gagna með fjórum eigindlegum djúpviðtölum. Þar af voru tvö viðtöl við erlendar stúlkur í vist, eitt við stúlku sem hafði verið í vist en starfar nú sjálf sem bóndi og ræður til sín erlent verkafólk og annað viðtal við bóndahjón sem hafa áralanga reynslu af því að ráða til sín erlent fólk í vist.
Meðal helstu niðurstaðna rannsóknarinnar eru mikilvægi félagstengsla, vísbendingar um slæm vinnuskilyrði á borð við mikla vinnu, lág laun og svarta vinnu og skortur á þekkingu um sjúkratryggingar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
pdf. Einsemd eða ævintýr.pdf | 447.92 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |