is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/484

Titill: 
  • Bónuskerfi Útgerðarfélags Akureyringa : greining á núverandi kerfum, endurbæting á þeim eða tillögur að nýjum kerfum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Bónuskerfi eru mikið notuð í fiskvinnslum um allt land. Ekki
    er til neitt eitt kerfi sem að er algilt, sum frystihúsin eru með sín
    eigin kerfi á meðan að önnur eru með kerfi sem að eru búin til af
    samtökum atvinnurekenda og eða verkalýðsfélögum. Hvernig sem
    þau eru búin til eru þau eru góð leið til þess að búa til hvata sem að
    gerir í raun báðum gott, starfsfólkinu og fyrirtækinu. Kerfið sem
    notað er á ÚA er tvöfalt, annars vegar snyrtilínubónus og hins
    vegar hópbónus. Þau eru þannig uppbyggð að fyrrnefnda kerfið fer
    eftir því hversu duglegur starfsmaður er sem vinnur við snyrtingu en
    seinna kerfið fer eftir því hversu miklu er pakkað í hverri viku.
    Þessi kerfi og þá sérstaklega það síðarnefnda flókið og virðist fólk
    ekki skilja hvernig það virkar. Hægt er að koma fram með ný kerfi
    sem að gera þetta mun skiljanlegra og meðfærilegra í notkun. Ein
    hugmynd sem að er mjög góð er að fækka þeim flokkum sem
    borgað er eftir. Nú eru þetta fleiri tugir flokka sem borgað er eftir
    að ef að fækkað er niður í 3 flokka verður þetta mun hentugra. Þá er
    bara fundin út ein krónutala á hvern flokk, afurðatengdur bónus.
    Önnur hugmynd sem skoða má er að tengja bónusinn við hráefnið,
    hráefnistengdur bónus. Þá eru bara settar fram krónutölur á hvern
    stærðarflokk og greitt eftir því hversu mikið af hverjum
    stærðarflokki er unnið hverja viku. Síðasta hugmyndin sem kom
    fram í sambandi við hópbónusinn var að tengja bónusinn við
    framleiðsluverðmæti ,framleiðsluverðmætis bónus. Þá er það bara
    ein ákveðin prósenta sem borguð er af
    heildarframleiðsluverðmætinu fyrir vikuna. Sú breyting sem gerð er
    ásnyrtibónusnum er að tengja forsendurnar við nýtingu og gæði þar
    sem að þá er verið að fá sem mest úr takmarkaðri auðlind. Einnig er
    þá meiri áhersla á gæði en ekki bara hraða. Allar þessar hugmyndir
    er góðar og vel til þess fallnar til að skoða vel með það að markmiði
    að innleiða þær.

Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/484


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
bonuskerfi.pdf580.13 kBOpinnBónuskerfi Útgerðarfélags Akureyringa - heildPDFSkoða/Opna