Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4863
Nanótæknin er talin geta orðið ein stærsta tæknibylting seinni tíma og beinast augu manna í sívaxandi mæli að þeirri tækni og hvernig má nýta þá tækni á sem flestum sviðum. Þróun nýrra lækningaraðferða á nanóskalanum skapar nýtt svið greiningar og meðferðarúrræða. Lyfjasýklódextrínlausnir hafa sýnt að þær mynda samloðandi agnir á nanóskalanum.
Markmið verkefnisins var að rannsaka leysni torvatnsleysanlegra lyfja í sýklódextrínlausnum, agnmyndun lyfjasýklódextrínfléttna, osmótískra eiginleika þeirra, flæði yfir sellófónhimnur sem og yfir hentugt lífrænt slímhimnumódel.
Niðurstöður sýndu að sýklódextrín geta aukið leysanleika torleystra lyfja, myndað samloðandi agnir á nanóskalanum, og þótt flæðihraði (e. permeation) rannsakaðra lyfja í gegnum steinbítsroð aukist ekki eykst flæði (e. flux) þeirra í gegnum roðið vegna aukningar á lyfstyrk við ytra yfirborð roðsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Vidar_Gudjohnsen_ritgerd_an_vidauka.pdf | 30.51 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |