Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4874
Bakgrunnur: Candidasýkingar undir gervitönnum eru meðal algengustu sjúkdóma í munni hjá einstaklingum sem nota gervitennur. Sýkingarnar eru meðhöndlaðar staðbundið með sveppalyfjum. Aðalvandamál við þessar meðferðir eru að þær eru
ekki nægilega áhrifaríkar til lengri tíma litið, auk þess getur tíð notkun þeirra leitt til
aukinnar ónæmismyndunar gagnvart algengum sveppalyfjum. Þetta hefur aukið
mikilvægi þróunar á nýjum leiðum til meðhöndlunar á sveppasýkingum.
Örverudrepandi eiginleikar fituefna eins og fitusýra og mónóglýseríða hafa lengi verið
þekktir. Í flestum rannsóknum hefur mónókaprín sýnt mestu virknina gegn örverum.
Markmið: Markmið þessarar rannsóknar var að finna hentugan styrk mónókapríns í
tannlími sem hefur sveppadrepandi áhrif í þeim tilgangi að vera fyrirbyggjandi gegn
eða til meðhöndlunar á candidasýkingum undir gervitönnum. Einnig var markmiðið
að kanna leysnihraða mónókapríns úr tannlíminu, sýrustigsbreytingar á
mónókaprínblöndunni og áhrif mónókapríns á viðloðun tannlíms.
Aðferðir: Næmnispróf var notað til þess að finna hentugan styrk mónókapríns, losun
mónókapríns úr tannlíminu var könnuð með leysnihraðaprófi á mónókaprínblöndu,
sem var svo reynt að magngreina með HPLC og UV tæki. Sýrustigsbreytingar voru
athugaðar með þynningum á mónókaprínblöndu og breytingar á eiginleikum tannlíms
voru athugaðar með viðloðunartæki.
Niðurstöður: Næmnispróf sýndi að mónókaprínið var að flæða vel úr tannlíminu. 3%
styrkur sýndi góða hömlun á sveppavexti og var valinn til áframhaldandi rannsóknar.
Leysnihraðapróf var framkvæmt en ekki tókst að magngreina sýnin með HPLC né UV
tæki. Sýrustigsbreytingar voru mjög litlar og var hún svipuð og hjá tannlíminu.
Viðloðunarmælingar sýndu að mónókaprín var að hafa lítil áhrif á slitkraft en meiri
áhrif á vinnu samloðunar á tannlími.
Ályktanir: Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að 3% mónókaprínblanda hefur góða
hömlun á sveppavexti. Hún er því hentug til áframhaldandi prófana í klínískum
rannsóknum til að komast að því hvort að hægt sé að nota hana sem fyrirbyggjandi
gegn eða til meðhöndlunar á candidasýkingum undir gervitönnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MS-ritgerð.pdf | 2.55 MB | Lokaður | Heildartexti |