is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4914

Titill: 
  • Upplýsingaarkitektúr. Þú getur ekki notað það sem þú finnur ekki
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi heimildaritgerð var unnin í þeim tilgangi að varpa ljósi á upphaf hugtaksins
    upplýsingaarkitektúr og skilgreiningu þess. Hver var fyrstur til að nota hugtakið og í hvaða
    samhengi hugtakið varð til. Sagt er frá upphafsdögum Internetsins og sýnt fram á að
    upplýsingaarkitektúr hefur verið notaður til að gera vefsíður aðgengilegri frá því að netið náði
    vinsældum. Sagt er frá því hvernig starfsheitið upplýsingaarkitekt hefur þróast frá síðustu
    aldamótum og hvernig það er að breytast. Farið er yfir hvernig best er að hanna nafnakerfi og
    leiðakerfi og fjallað um notkun lýsigagna, stýrðs orðaforða og kerfisbundinnar efnisorðaskráa
    á vefnum. Fjallað er um leitir og hvað er hægt að gera til að fá hærri röðun í leitarvélum. Farið
    er yfir hvernig hægt er að framkvæma notendaprófanir á vefnum. Einnig er rætt um aðgengi á
    vefnum. Sagt er frá því hvernig best er að skipuleggja vefsetur fyrirtækja. Fyrirtækið
    Gagnavarslan er skoðað og vefsetur þess eins og það birtist á vefnum 24. febrúar 2010. Tekin
    voru viðtöl við starfsmenn Gagnavörslunnar til að fá þeirra sýn á vefsetur fyrirtækisins.
    Vefsetur Focal, Hugvits og Skýrr voru skoðuð til að fá hugmyndir um útlit, hönnun á
    leiðakerfi og innihaldi, en fyrirtækin veita öll svipaða þjónustu og Gagnavarslan. Tekin voru
    saman markmið, framtíðarsýn og næstu skref sem bíða Gagnavörslunnar í vinnu þeirra við
    vefsetur fyrirtækisins. Að lokum voru gerðar tillögur að upplýsingaarkitektúr fyrir vefsetur
    Gagnavörslunnar.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til júlí 2013
Samþykkt: 
  • 4.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4914


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Eva_ba_lokaskjal-prentun.pdf3 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna