Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/496
Markaðssamstarf : lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki í Þingeyjarsveit
Lokaverkefni þetta er unnið í áfanganum LOK 2106 við Ferðaþjónustubraut Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri í janúar til maí 2005. Markmið verkefnisins er að rannsaka lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki í Þingeyjarsveit og leitast við að svara rannsóknarspurningunum:
• Hverjir eru helstu þættir markaðssetningar hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit?
• Hvert er viðhorf til markaðssamstarfs í framtíðinni?
• Eru lítil og meðalstór fyrirtæki í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit að nýta sér fræðslu og tækifæri til aukinnar þekkingar?
Til að svara rannsóknarspurningunum var gerð símakönnun meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit og var svarhlutfall 72,2%. Helstu niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að ekkert fyrirtækjanna starfar eftir markaðsáætlun og þau hafa takmarkað bolmagn til markaðssetningar. Viðhorf til markaðssamstarfs í framtíðinni er jákvætt, mjög mikill áhugi er á samstarfi innan Þingeyjarsveitar. Enginn forsvarsmanna fyrirtækjanna hafði sótt námskeið Fræþings síðustu 12 mánuði en allir nema tveir höfðu aflað sér aukinnar þekkingar hjá öðrum opinberum aðilum. Á grundvelli rannsóknarinnar er lagt til að aðferðir við markaðssetningu ferðamannastaðar og samstarfskeppni verði notaðar í Þingeyjarsveit.
Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| markads-dagbok.pdf | 52,5KB | Takmarkaður | Markaðssamstarf - dagbók | ||
| markads-e.pdf | 162KB | Opinn | Markaðssamstarf - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
| markads-fs.pdf | 1,29MB | Takmarkaður | Markaðssamstarf - viðaukar | ||
| markads-h.pdf | 178KB | Opinn | Markaðssamstarf - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
| markads-konnun.pdf | 48,4KB | Takmarkaður | Markaðssamstarf - könnun | ||
| markads-u.pdf | 101KB | Opinn | Markaðssamstarf - útdráttur | Skoða/Opna | |
| markads.pdf | 1,26MB | Takmarkaður | Markaðssamstarf - heild |