is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4971

Titill: 
  • Taumur líðandi stundar: Um tíma og endurtekningar í ljósmyndum Bærings Cecilssonar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð eru ýmsar birtingarmyndir endurtekninga ræddar og nokkrum helstu hugmyndum fræðimanna um ljósmyndir gerð skil. Í fyrsta hluta er hugtakið endurtekning skilgreint út frá hugmyndum heimspekingsins Sörens Kierkegaards, og sú skilgreining svo borin saman við skrif bókmenntafræðingsins Walters Benjamins um fjölda¬framleiðsluna og menningu henni tengdri. Hugmyndir Walters Benjamins um ljósmyndina eru einnig til umræðu, og þær tengdar skrifum annarra bókmennta¬fræðinga, Rolands Barthes og Susan Sontag.
    Annar hluti ritgerðarinnar fjallar um birtingamyndir endurtekningarinnar í listum, og nefnd eru sem dæmi ljósmyndir Sherrie Levine og Einars Fals Ingólfssonar.
    Þriðji hluti ritgerðarinnar er kynning á ljósmyndaranum Bæring Cecilssyni, ævi hans og umhverfi, sem og á þeim fjölda ljósmynda sem hann skildi eftir sig og varðveittar eru á Bæringsstofu, safns er stofnað var í minningu hans.
    Í fjórða hluta er fjallað um ljósmyndir Bærings, hluta þeirra skipt upp í fimm flokka og þær ræddar út frá þeim hugmyndum og hugtökum sem gerð eru skil í fyrsta hluta ritgerðarinnar.
    Í lokin er ritgerðin dregin saman í hnotskurn og imprað á aðalatriðum hennar.

Samþykkt: 
  • 6.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4971


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ritgerd.pdf4.96 MBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
Viðauki.pdf3.76 MBOpinnFylgiskjöl: Viðauki, ljósmyndirPDFSkoða/Opna