Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5002
Rannsókn þessi snýst um íslenska fatahönnun og alþjóðavæðingu íslenskrar fatahönnunar. Markmið með rannsókninni voru tvö. Í fyrsta lagi að kortleggja íslenska fatahönnun og komast að því hvort að fatahönnunarklasi hafi myndast á Íslandi. Í öðru lagi að rannsaka hvort útrás íslenskra fatahönnuða samræmist Uppsalakenningunni um alþjóðavæðingu fyrirtækja, eða Born global kenningunni.
Rannsakandi notaði bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Megindlegi hlutinn var spurningakönnun og voru niðurstöður hennar greindar með tölfræðiforritinu SPSS. Eigindlegi hluti rannsóknarinnar samastóð af hálfopnum viðtölum og voru þau kóðuð og greind út frá kóðunum.
Niðurstöður benda til þess að ekki hafi myndast fatahönnunarklasi á Íslandi þó að vísir að klasa komi fram í auknu samstarfi og samskiptum á milli aðila í greininni. Þá gefa niðurstöður einnig til kynna að íslenskir fatahönnuðir feti ekki stíg Uppsalakenningarinnar í alþjóðavæðingu sinni heldur séu fyrirtæki þeirra Born global fyrirtæki
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sigrún_Lóa_Svansdóttir.pdf | 482.49 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
Efnisyfirlit.pdf | 74.21 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Heimildaskrá.pdf | 95.29 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna |