is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5011

Titill: 
  • Virðisrýrnun varanlegra rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Frá því að íslenskum félögum bar að framkvæma virðisrýrnunarpróf á varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum hefur mikil umræða verið um gæði þeirra. Þessi umræða hefur verið bæði jákvæð og neikvæð, en það neikvæða hefur aðallega snúið að viðskiptavild. Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild þykja af mörgum gera kröfur um ýmsa matskennda hluti og vera þar af leiðandi verkfæri til að upphefja efnahagsreikninga félaga. Í þessari ritgerð verður farið í gegnum það hvernig félögum ber samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum að framkvæma virðisrýrnunarpróf á þessum eignum og hvernig færa skuli virðisrýrnun til bókar. Farið verður yfir íslensku ársreikningalögin og skoðað hvernig þau stangast á við alþjóðlegu staðlana. Sú gagnrýni sem fram hefur komið á virðisrýrnunarprófin verður skoðuð og sett í samhengi við aðstæður á Íslandi. Í lokin eru ársreikningar fjögurra félaga á Íslandi skoðaðir með tilliti til virðisrýrnunar á óefnislegum eignum og varanlegum rekstrarfjármunum.

Samþykkt: 
  • 7.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5011


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
RITGERÐ-pdf.pdf386.32 kBLokaðurHeildartextiPDF