Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5068
Líkamsmynd eru hugsanir, tilfinningar og skilningur fólks á þeirra eigin líkama sem getur verið jákvæð eða neikvæð. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að það er neikvætt samband á milli grannra ímynda í fjölmiðlum og líkamsmynd kvenna. Afleiðingar geta leitt til líkamskvíða sem er að líða illa og finna fyrir kvíða vegna líkamshluta. Í þessari rannsókn var samband milli fjölmiðla og líkamskvíða athugað. Fjölmiðlar voru ekki mældir beint heldur voru þeir mældir með áhættuþættinum innfæringu. Innfæring er að taka við og samþykkja gildin í samfélaginu á því hvað sé aðlaðandi. Skipt var í tvo hópa (N = 147) og var öðrum hópnum sýnd auglýsing af grannri fyrirsætu en hinn auglýsingu án líkama. Líkamskvíði var mældur eftir á. Tilgáturnar voru að því hærra sem gildi innfæringar væru í tilraunahóp, því hærri yrði líkamskvíðinn. Gildi innfæringar ættu ekki að hafa áhrif í samanburðarhópnum. Því miður kom ekki það samband sem búist var við. Þær stúlkur og konur sem mældust með hátt gildi innfæringar, reyndust vera með meiri kvíða bæði í tilraunahópnum og samanburðarhópnum. Rætt er hvernig hægt væri að bæta þessa rannsókn og væntanleg áhrif á niðurstöður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
uppkast m máti - senda - prófun2.pdf | 445.65 kB | Lokaður til...01.01.2030 | Heildartexti |