Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5123
Í ritgerðinni verður gerð grein fyrir birgðum og helstu hugtökum sem tengjast þeim, svo sem kostnaðarverði birgða, helstu skekkjum, bókun og flokkun birgða, flæði þeirra, ásamt því að farið er í birgðamat. Helstu matsaðferðir verða skoðaðar og fjallað almennt um birgðatalningu. Komið er inn á helstu lög og reglur sem gilda þegar unnið er með birgðir, svo sem reglur reikningsskilaráðs. Alþjóðlegi birgðastaðallinn, IAS 2, er útskýrður og farið er í hvað felst í honum.
Höfundur kynnti sér nokkur fyrirtæki innan Norvik- samsteypunnar, hvernig stórar verslanir eins og Krónan, Byko, Intersport og Elko standa að birgðatalningu um áramót og voru þær bornar saman við gjafavöruverslunina Model á Akranesi. Að mörgu þarf að huga þegar talning fer fram, framkvæmdin er útskýrð og helstu niðurstöður kynntar í lokin.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Birgðir-Vörutalningar í fyrirtækjum.pdf | 939.31 kB | Lokaður | Heildartexti |