Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5150
Markmið þessa lokaverkefnis var að skoða og fá fram vísbendingar um hvort virk mannauðsstjórnun væri áhrifaþáttur á myndun sterkrar/sveigjanlegrar fyrirtækjamenningar sem kenningin segir að geti veitt fyrirtækjum viðskiptaforskot og gert þau samkeppnishæfari á markaði. Rannsóknarspurningin er hvort að mannauðsstjórnun og fyrirtækjamenning hefði eitthvert vægi í breytingaferli eins og við yfirtökur og samruna eða í kreppuástandi? og rannsóknartilgátan er að svo sé ekki. Unnið var með fræðilegar heimildir um mannauðsstjórnun, fyrirtækjamenningu og aðra þætti sem tengjast viðfangsefninu. Rannsakandi styðst við fyrri rannsóknir um efnið og einnig þrjár eigin rannsóknir. Niðurstöður gáfu sterkar vísbendingar um að það skiptir verulegu máli fyrir skipulagsheildirnar að hafa virka mannauðsstjórnun og sterka/sveigjanlega fyrirtækjamenningu og virtist þá ekki skipta öllu máli í tengslum við hvaða þætti slíkt var skoðað. Það skipti alltaf máli bara mismiklu máli eftir því hvað var skoðað. Rannsóknartilgátu um að það skipti ekki máli var því hafnað.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Meistararitgerð endanleg.pdf | 839.28 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |