Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/518
Stærstu sveitarfélög á Íslandi hafa í flestum tilfellum mestu mannaforráð í atvinnulífinu. Þess vegna er mikilvægt að einblína á starfsmannamál, að vel sé haldið utan um þau og að þeim sé viðhaldið.
Stjórnendur Vestmannaeyjabæjar hafa áhuga á því að setja niður skriflega starfsmannastefnu til að skýra markmið og gera þau mælanlegri. Einnig að auðvelda starfsmönnum að skilja hvaða réttindi og skyldur þeir hafa.
Í þessu verkefni voru gerð drög að starfsmannastefnu fyrir Vestmannaeyjabæ. Til þess að það væri mögulegt var gerður samanburður á tveimur mótuðum starfsmannastefnum hjá sveitafélögum Akureyrar- og Reykjanesbæjar. Tekin voru viðtöl við starfsmannastjóra þeirra og fyrrverandi bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar. Einnig voru sendir út spurningalistar til starfsmanna Vestmannaeyjabæjar til að kanna þörfina fyrir starfsmannastefnu.
Þeir þættir sem eru í drögum að starfsmannastefnunni eru þeir þættir sem starfsmönnum þykir þörf fyrir í starfsmannamálum.
Miðað við viðbrögð hluta starfsmanna gagnvart könnuninni mátti finna fyrir vissri hræðslu og óvissu. Þá má telja að starfsmönnum líði ekki vel í vinnunni og að þeir séu óöruggir með störf sín. Þetta sýnir að mikil þörf er á úrbótum í mannauðsstjórnun.
Lykilorð:
Mannaforráð
Mannauðsstjórnun
Starfsmannastjóri
Starfsmannastefna
Starfsmenn
Sveitarfélag
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
starfsmstvest.pdf | 1.58 MB | Takmarkaður | Starfsmannastefna Vestmannaeyjabæjar - heild | ||
starfsmstvest_e.pdf | 451.19 kB | Opinn | Starfsmannastefna Vestmannaeyjabæjar - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
starfsmstvest_h.pdf | 458.7 kB | Opinn | Starfsmannastefna Vestmannaeyjabæjar - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
starfsmstvest_u.pdf | 415.73 kB | Opinn | Starfsmannastefna Vestmannaeyjabæjar - útdráttur | Skoða/Opna |