is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5196

Titill: 
  • Verðmat íbúðarhúsnæðis
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um verðmat á íbúðarhúsnæði en verðmat er nálgast með því að finna rekstrarvirði tiltekinna eigna. Þá er rekstrarvirði borið saman við mögulegt markaðsvirði. Slík aðferð er nytsamleg við ákvarðanatöku á fasteignamarkaði. Þeir aðilar, sem eiga íbúðarhúsnæði, geta notað slíka aðferðafræði til að komast að því hvort hagkvæmara sé að selja eign á markaðsvirði eða setja hana á leigumarkað.
    Til stuðnings verðmati er gerð grein fyrir helstu verðmatsaðferðum, hvernig verð á mörkuðum getur á stundum reynst óraunhæft, og hver sérkenni fasteignamarkaðs eru. Eignabólur leiða til þess að samanburðargreining veitir falskt öryggi. Til þess að verðmeta hvers kyns rekstur er þörf á þekkingu á viðeigandi rekstrarumhverfi. Fasteignamarkaður var því skoðaður sérstaklega.
    Álykta má frá niðurstöðum ritgerðarinnar að rekstrarvirði íbúðarhúsnæðis sé lægra en markaðsvirði. Þá benda niðurstöður ritgerðarinnar til þess að verði rekstrarvirði annað hvort hærra eða jafnt og markaðsvirði þyrfti fasteignaverð að lækka enn frekar, eða leigutekjur að hækka umtalsvert.

Samþykkt: 
  • 12.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5196


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Verðmat íbúðarhúsnæðis.pdf746.43 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna