Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5247
Siðferði á íslenskum hlutabréfamarkaði er viðfangsefni þessarar ritgerðar. Íslenski hlutabréfamarkaðurinn er tiltölulega ungur, hann reis hratt en féll þó snöggar niður og vilja margir meina að skortur á siðferði stjórnenda og eigenda hlutafélaga, eigi þar meginsök á máli. Markmiðritgerðarinnar er að velta því fyrir sér hvort sú hafi verið raunin.
Kannaðar verða siðferðis- og lagalega skyldur fyrirtækja og lýst verður sambandi siðferðis og viðskipta, skoðaðir verða innri og ytri þættir starfsumhverfis fyrirtækja, hvernig eftirliti á fjármálamarkaði sé háttað og lýstverður hlutverki og ábyrgð endurskoðenda og einstaklingins í samfélaginu.
Niðurstaðan er nokkuð afdráttarlaus. Íslenski hlutabréfamarkaðurinn er meingallaður, siðferði stjórnenda margra íslensku hlutafélaganna var stórkostlega ábótavant og margar leiðir eru til að hagnast og það á kostnað annarra hluthafa.Eftirlit á markaði virkaði ekki og ábyrgð endurskoðenda er mikil.
Í lok ritgerðarinnar verða ræddar leiðir til bóta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS Ritgerd_ Siðferði á ísl. hlutabréfamarkaði_lokaskjal.pdf | 1.4 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |