Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5259
Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í listfræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er fjallað um sögu erótíkur og kláms í listum, skilgreiningar á klámi og áhrif þess á samfélagið sem og femínísk viðbrögð við hlutgervingu kvenlíkamans í listum.
Ritgerðin hefst á almennri umfjöllun um klám og skilgreiningar á því. Einnig verður gerð grein fyrir nokkrum rannsóknum sem hafa verið gerðar um áhrif kláms. Því næst verður fjallað um erótík í listasögunni, frá upphafi til okkar daga, þar verður farið í gegnum tímabil grískra og rómverskra lista, endurreisnarinnar, impressjónisma, expressjónisma, kúbisma og til listamanna samtímans. Að lokum er rætt um ímynd kvenna, karlmennsku og vald og andsvör femínískra listakvenna í samtímanum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kvenlíkaminn í listasögunni.pdf | 1.61 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |