Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5283
Íslenskir kafarar eru duglegir að kafa bæði í sjó og í vötnum á Íslandi sem og að kafa nokkuð erlendis. Köfunarstaðir við Ísland eru margir og ólíkir og er vinsælasti köfunarstaðurinn á Íslandi, Silfra í Þingvallavatni en einnig er kafað mikið í sjó við landið. Öryggismálin sem snúa að köfun á Íslandi eru ekki í nógu góðu standi og lítið eftirlit er með kennslu í köfun. Lög og reglugerðir um köfun á Íslandi henta illa hér á landi. Reglugerðin er þýdd upp úr norskri reglugerð sem snýst að miklu leiti um köfun við olíuborpalla. Á síðustu árum hafa köfunarslys og óhöpp verið fá og hefur verið minna um þau síðasta áratuginn heldur en áratugina á undan. Þegar kemur að atvinnuköfun, bæði kennslu og ferðamannaköfun er lítið eftirlit og öryggisstöðlum ekki vel fylgt eftir. Siglingastofnun sér um útgáfu kafaraskírteina sem eiga sér enga hliðstæðu í heiminum og gilda hvergi annars staðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerðin.pdf | 902.34 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |