is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5285

Titill: 
  • Ævintýraferðamennska á Íslandi. Eftirlit og kröfur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Mikil aukning hefur verið í ævintýraferðamennsku á Íslandi og sýnt hefur verið fram á að þessari grein fylgir töluverð áhætta þó svo að á sama tíma sé áhættan eitt af aðdráttaröflunum. Markmið rannsóknarinnar var að skoða það eftirlit sem er með ævintýraferðamennsku á Íslandi í dag. Hvaða kröfum og reglum þarf að fylgja og hvernig skipuleggjendur ævintýraferða starfrækja ferðirnar. Við gagnaöflun var notast við eigindlega rannsóknaraðferð, sex opin viðtöl voru tekin við fólk sem tengdist ævintýraferðamennsku á einhvern hátt. Lítið sem ekkert eftirlit né kröfur eru með starfsemi ævintýraferða á Íslandi í dag og niðurstöður rannsóknarinnar eru að ævintýraferðum fylgir áhætta og byrja þurfi á að skilgreina hugtakið ævintýraferðamennska svo hægt sé að setja kröfur og reglur um greinina. Þær reglur og kröfur sem fyrirtæki í ævintýraferðamennsku fara eftir eru flestar frá þeim sjálfum komnar og sýnt er að reynsla skiptir mestu máli í þessum geira. Til að lágmarka hættu er mikilvægt er að fá fagaðila með mikla reynslu til að setja kröfur á Íslandi.

Samþykkt: 
  • 15.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5285


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSFreyjaÁgústsdóttir.pdf494.74 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna