Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5294
Innihald þessarar ritgerðar fjallar um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. Markmið þessarar ritgerðar er að grafast fyrir um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum í íslensku samfélagi. Skoðað var hvaða forvörnum er beitt og hvers konar fræðslu íslensk börn og ungmenni fá um kynferðislegt ofbeldi, hverjir veita fræðsluna og hvernig sú fræðsla fer fram. Stuðst var við fjölda heimilda við gerð ritgerðarinnar, t.d. úr vísindalegum rannsóknum, fagtímaritum og veraldarvefnum.
Helstu niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að fræðsla um kynferðislegt ofbeldi sem beint er að börnum, ungmennum og fullorðnum hafi mikið forvarnargildi. Til að koma í veg fyrir ofbeldið er áhrifaríkasta leiðin að þjálfa fagaðila og þá sem umgangast börn í að greina einkenni kynferðislegs ofbeldis á börnum svo hægt sé að draga úr áhrifum þess. Forvarnarfræðslan í kynferðislegu ofbeldi gegn börnum verður að vera í samræmi við aldur og þroska barnsins þar sem viðfangsefnið er viðkvæmt og flókið mál. Í aðalnámskrá grunn- og framhaldskóla vantar markvissa áætlun um forvarnarfræðslu gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba-ritgerð Lokaskjal.pdf | 500.47 kB | Lokaður | Heildartexti |