Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/533
Í þessu verkefni er fjallað um ráðningar og starfsmannaval hjá skipulagsheildum á Akureyri og í Reykjavík. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á þá þætti í innra og ytra umhverfi skipulagsheildanna sem hafa áhrif á ráðningar og starfsmannaval og reyna að sanna eða afsanna eftirfarandi tilgátu:
Það er algengara að skipulagsheildir á Akureyri noti óformlegri aðferðir þegar leitað er að umsækjendum fyrir störf heldur en sömu/sambærilegar skipulagsheildir í Reykjavík.
Unnin var fræðileg greining á meginþáttum mannauðsstjórnunar, einkum á ráðningum og starfsmannavali, og lykilhugtök skilgreind til að brjóta niður tilgátuna og leggja grunn að markvissri greiningu á sannleiksgildi hennar. Í þeirri rannsókn sem hér var gerð voru tekin viðtöl við aðila sem hafa yfirumsjón með ráðningum hjá fjórum skipulagsheildum á Akureyri og fjórum í Reykjavík. Val á skipulagsheildum miðaðist við að starfsmenn væru fimmtán eða fleiri. Viðtölin voru tekin á tímabilinu 10.desember 2004 til 5.janúar 2005.
Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er að það er ekki algengara að skipulagsheildir á Akureyri noti óformlegri aðferðir þegar leitað er að umsækjendum fyrir störf heldur en sömu/sambærilegar skipulagsheildir í Reykjavík. Akureyskar skipulagsheildir standa ekki með öðrum hætti að ráðningum heldur en sömu/sambærilegar skipulagsheildir í Reykjavík.
Lykilorð:
Mannauðsstjórnun
Ráðningar
Starfsmannaval
Skipulagsheild
Akureyri
Reykjavík
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
radningar.pdf | 379.01 kB | Takmarkaður | Ráðningar og starfsmannaval á meðal skipulagsheilda á Akureyri og í Reykjavík - heild | ||
radningar_e.pdf | 91.1 kB | Opinn | Ráðningar og starfsmannaval á meðal skipulagsheilda á Akureyri og í Reykjavík - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
radningar_h.pdf | 156.26 kB | Opinn | Ráðningar og starfsmannaval á meðal skipulagsheilda á Akureyri og í Reykjavík - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
radningar_u.pdf | 126.71 kB | Opinn | Ráðningar og starfsmannaval á meðal skipulagsheilda á Akureyri og í Reykjavík - útdráttur | Skoða/Opna |