is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Rannsóknarverkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5358

Titill: 
  • Samanburður á svefntíma kvenna sem vinna vaktavinnu annars vegar og stunda dagskóla hins vegar
Útdráttur: 
  • Áhrif næturvakta á svefn vaktavinnufólks hafa lítið verið rannsökuð á Íslandi. Vitað er að næturvaktavinna hefur áhrif á svefn- og vökumynstur vegna misræmis milli lífklukkunnar og ytra áreitis svo sem dagsbirtu. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða svefnmynstur hjúkrunarfræðinga sem vinna vaktavinnu. Ýmsir þættir svefns voru kannaðir með virknimæli (Actiwatch®),
    spurningalista og svefnskrá. Samanburður var gerður við hóp hjúkrunarfræðinema sem var talinn hafa að jafnaði stöðugra svefnmynstur. Sex starfandi hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum við Hringbraut og jafnmargir nemar, sem stunda dagskóla í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands, tóku þátt í rannsókninni. Mælingatími stóð í viku hjá
    hvorum hópi. Starfshlutfall hjúkrunarfræðinganna var 80-100% og unnu þeir ýmist morgun-, kvöld- og/eða næturvaktir. Nemarnir stunduðu nám í dagskóla, um 35 tíma þá skólaviku. Skilyrði fyrir þátttöku voru að einstaklingar væru á aldrinum tuttugu til þrjátíu ára og
    barnlausir. Rannsóknarspurning var sett fram: Er svefn hjúkrunarfræðinga í vaktavinnu skertur í samanburði við svefn hjúkrunarfræðinema? Niðurstöður sýndu að hjúkrunarfræðingar fengu marktækt minni svefn á vinnudögum en nemar á virkum dögum.

Samþykkt: 
  • 21.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5358


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
EvaMariaGudm.pdf1.76 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna