is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5391

Titill: 
  • Offita á skólaaldri. Tækifæri til forvarna í ungbarnavernd
Titill: 
  • Obesity in schoolchildren - Prevention in infancy
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Offita er vaxandi vandamál hjá börnum í nútíma samfélagi, en offita og heilbrigðisvandi henni tengd meðal fullorðinna er eitt stærsta heilbrigðisvandamál 21. aldar. Íslendingar hafa ekki farið varhluta af þessari þróun, en tíðni offitu meðal barna á skólaaldri hefur fimmfaldast frá miðri síðustu öld og er nú líklega um 5% og jafnvel hærri í sumum hópum. Megintilgangur þessarar fræðilegu úttektar er að varpa ljósi á stöðu þekkingar um tengsl milli næringar og vaxtar ungbarna og þróunar á ofþyngd eða offitu í barnæsku og skoða í ljósi opinberra ráðlegginga um næringu ungbarna. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að brjóstamjólk er almennt talin verndandi þáttur gegn offitu en mikil próteinneysla getur aukið líkur á offitu.
    Þá hafa veik, jákvæð tengsl fundist milli fæðingarþyngdar og líkamsþyngdarstuðuls (LÞS)
    síðar á ævinni í rannsóknum á fólki sem fæddist fyrir miðbik síðustu aldar. Neikvæð tengsl hafa hins vegar fundist milli fæðingarþyngdar og búkfitu eða óæskilegrar fitusöfnunar. Minna er eðlilega vitað um áhrif af hárri fæðingarþyngd nýbura í dag og tengsl við þyngd og fitusöfnun síðar á ævinni. Hröð þyngdaraukning ungbarna er talin auka líkur á ofþyngd eða offitu.
    Til að greina þann hóp sem huga þarf sérstaklega að í ungbarnaeftirliti eru í ritgerðinni einnig skoðaðir áhrifaþættir þess hvaða næringu barnið fær. Ráðleggingar um næringu eru í sífelldri endurskoðun og starfa sérfræðingahópar við það með mati á staðbundnum og alþjóðlegum vísindarannsóknum. Heimilda fyrir ritgerðina var leitað í gagnasöfnunum PubMed, Scopus og Ovid.

Samþykkt: 
  • 25.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5391


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni í sniðmáti loka.pdf271.1 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna