Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5409
Í þessum skrifum verður fjallað um hlutverk ritmáls, upphaf þess og þróun, þá hugmynd að festa hagnýtar upplýsingar, hugsanir og hugmyndir í varanlegt efni, þannig að þær verði samtímamönnum og komandi kynslóðum aðgengilegar. Farið verður í gildi þess að þjóðfélagsþegnar séu læsir og skrifandi og fjallað um hlutverk skriftar fyrir samfélög og hvernig mismunandi ritkerfi henta ólíkum tungumálum. Fjallað verður um kerfi tákna, til dæmis táknmyndir sem skiljanlegar eru án sérstaks lærdóms, mismunandi ritkerfi og þróun þeirra, til að mynda skrift Súmera, egypskt myndletur, atkvæðaskrift, grísk-föníska stafrófið, latínuletur, ritmál Kínverja og rúnaletrið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_ritgerd_GudnySifJond.pdf | 680.8 kB | Lokaður | Heildartexti |