Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5440
Sorg og sorgarviðbrögð við missi á meðgöngu eru einstaklingsbundin upplifun. Áhrifin eru margvísleg og geta mótað syrgjendur til framtíðar. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits er að skoða upplifun foreldra af missi á meðgöngu, hvort missir hafi áhrif á framtíðarbarneignir og hvernig heilbrigðisstarfsfólk geti stutt sem best við aðstandendur. Skoðuð voru áhrif af myndatökum og möguleg úrræði eins og hugræn atferlismeðferð í úrvinnslu sorgar.
Helstu niðurstöður samantektarinnar sýna að foreldrar sem missa barn á meðgöngu eru í mikilli þörf fyrir stuðning í formi nærveru, virkrar hlustunar og eftirfylgni. Sýna rannsóknir fram á að munur er á upplifun mæðra og feðra á missi þó svo að þarfirnar séu jafn mikilvægar. Einnig kemur fram að feður upplifa minni stuðning heldur en mæður eftir missinn. Hlutverk heilbrigðis-starfsfólks er mikilvægt hvað varðar stuðning við aðstandendur og viðurkenningu á missi og sorg þeirra.
Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk kynni sér einkenni sorgarinnar, upplifun þeirra sem lenda í henni og tileinki sér frekari úrræði og meðferðir og beiti þeim. Vonast höfundar til þess að þessi úttekt varpi ljósi á það ferli sem foreldrar ganga í gegnum þegar missir á meðgöngu verður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni til útprentunar. 26.pdf | 499.32 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |