is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5451

Titill: 
  • Þýðing og forprófun á CRIES verkjamati á nýburum á vökudeild
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að þýða, staðla og forprófa mælitækið CRIES sem var hannað af þeim Krechel og Bildner árið 1995 til þess að meta aðgerðatengda verki hjá nýburum. CRIES í enskri útgáfu er talið vera eitt af ákjósanlegustu mælitækjunum sem hönnuð hafa verið fyrir nýbura og hafa rannsóknir sýnt fram á marktækni þess og áreiðanleika og er það samþykkt af hjúkrunarfræðingum á nýburagjörgæslu.
    Aðferð: Notast var við lýsandi megindlega aðferðarfræði. Úrtakið var þægindaúrtak 21 nýbura. 7 nýburar duttu út vegna óviðráðanlegra aðstæðna og voru því 9 drengir og 5 stúlkur í endanlegu úrtaki. Gagna var aflað á vökudeild Barnaspítala Hringsins í Reykjavík. Skilyrði fyrir þátttöku var að nýburi hafi lent í eða muni lenda í sársaukavaldandi aðstæðum. Rannsakendur voru tveir og mátu þeir nýburana við sömu aðstæður. Nokkrir nýburar voru metnir af einum rannsakanda hverju sinni. Fylgst var með nýburunum við þrenns konar aðstæður sem eru eftirfarandi: hlutlausar aðstæður, við raskandi aðstæður og við sársaukafullar aðstæður. Ekki voru nein inngrip í þágu rannsóknarinnar þar sem einungis var fylgst með nýburunum.
    Niðurstöður: Við samanburð á mælingum kom í ljós marktækur munur milli aðstæðna (hlutlausra, raskandi og sársaukafullra) sem staðfestir réttmæti og háan áreiðanleika milli rannsakenda. Þetta bendir til þess að mælitækið sé gagnlegt við að meta sársauka nýbura.
    Ályktun: Rannsakendur telja að íslenska þýðingin á CRIES henti vel til að meta verki hjá íslenskum nýburum. Frekari rannsókna er þörf til að staðfesta réttmæti og nákvæmni þess.
    Lykilorð: forprófun, CRIES, nýburi, verkir, verkjamat

Samþykkt: 
  • 28.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5451


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Í PRENTUN!.pdf630.41 kBLokaðurHeildartextiPDF