Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5453
Tilgangur: Tilgangur rannsóknar var að skoða út frá sjónarhóli hjúkrunarfræðinga reynslu þeirra af þátttöku í fræðsluhluta innleiðingar matslista fyrir skjólstæðinga með geðrænan vanda á slysa- og bráðadeildum Landspítala – Háskólasjúkrahúss.
Aðferð: Rannsóknin var fyrirbærafræðileg og notast var við hentugleikaúrtak. Þátttakendur voru sjö hjúkrunarfræðingar starfandi á slysa- og bráðadeildum Landspítala – Háskólasjúkrahúss sem allir höfðu tekið þátt í fræðsluhluta innleiðingarferlisins. Gögnum var safnað með sjö óstöðluðum viðtölum og notast var við viðtalsvísi. Meginniðurstöður viðtalanna voru greind í þemu.
Niðurstöður: Hjúkrunarfræðingarnir voru allir mjög ánægðir með þá fræðslu sem þeir fengu og voru ekki í vafa um að þekkingin nýttist þeim í starfi. Fimm megin þemu voru greind: ,,Hindranir í meðferð skjólstæðinga“, ,,Mikilvægi fræðslu“, ,,Hvatning til aukins lærdóms“, ,,Mikilvægi samskipta bráðasviðs og geðsviðs“ og ,,Næsta skrefið“.
Ályktun: Hjúkrunarfræðingar tjáðu aukið öryggi eftir veitta fræðslu og létu í ljós mikilvægi áframhaldandi fræðslu sem og þjálfun í viðtalstækni. Jafnframt töldu þeir innleiðingu matslistans skref í átt að bættri hjúkrun skjólstæðinga með geðrænan vanda. Þannig er aukin fræðsla og regluleg þjálfun hjúkrunarfræðinga á slysa- og bráðadeild í mati og meðferð skjólstæðinga með geðrænan vanda nauðsynlegur hluti af innleiðingu matslista og forsenda bættrar hjúkrunar þessa hóps.
Lykilorð: fræðsluþarfir, geðræn vandamál, slysa- og bráðadeild, hjúkrun, forgangsröðun, matslisti.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Innleiðing matslista- mat á fræðsluhluta innleiðingar.pdf | 643.2 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |