is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5456

Titill: 
  • Áhrif fyrirtíðaspennu á líðan kvenna. Fræðileg samantekt
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Flestar konur á barnseignaraldri upplifa líkamleg og sálræn einkenni fyrirtíðaspennu nokkrum dögum fyrir blæðingar. Venjulega eru einkennin væg en um 5-8% kvenna tjá alvarleg einkenni með umtalsverðum áhrifum á daglega virkni.
    Tilgangur verkefnis er að afla fræðilegrar þekkingar um áhrif fyrirtíðaspennu á líðan kvenna og meta mismunandi meðferðarleiðir að bættri líðan.
    Rannsóknarspurningar sem settar voru fram við fræðilega heimildaleit voru þrjár:
    1. Er serótónínvirk lyfjameðferð áhrifarík við einkennum fyrirtíðaspennu?
    2. Hvaða óhefðbundnu meðferðarleiðir eru mögulegar til meðferðar við einkennum fyrirtíðaspennu?
    3. Eru óhefðbundnar meðferðarleiðir áhrifaríkar á einkenni fyrirtíðaspennu?
    Heimilda var aflað í gagnagrunnunum Google Scholar og PubMed. Heimildaskrár fræðigreina og rannsókna voru einnig skoðaðar á grundvelli þeirra leitarorða sem við höfðum sett fram.
    Við heildrænt yfirlit rannsóknarniðurstaðna kemur í ljós að meðferð með serótónínvirkum lyfjum ásamt óhefðbundnum meðferðum hefur jákvæð áhrif á einkenni fyrirtíðaspennu. Meðferðinar hafa báðar jákvæð áhrif á líkamleg,- sálræn- og hegðunarleg einkenni fyrirtíðaspennu.
    Þar sem fyrirtíðaspenna hefur að stærstum hluta áhrif á konur á aldrinum 18-45 ára sem að öllu jöfnu bera mikla ábyrgð gagnvart skóla, atvinnu og fjölskyldu, er mikilvægt að almenningur og starfsfólk heilbrigðiskerfis þekki til þessara breytinga á líðan kvenna fyrir blæðingar.
    Lykilorð: Fyrirtíðaspenna, serótónínvirk lyf og óhefðbundnar meðferðir.

Samþykkt: 
  • 28.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5456


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Áhrif fyrirtíðaspennu á líðan kvenna.pdf373.96 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna